blogg rakelar

Velkomin á bloggsiduna mina

15.06.2007 22:56:17 / rakelgu

Leiðrétting

http://rakel.betra.is

 

....er víst nýja vefslóðin - til að forðast misskilning!! Fingurnir varla ráða við þetta ennþá!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 22:11:34 / rakelgu

Flutt!

Já nú er ég flutt!

Býð ykkur velkomin á nýja heimasíðu á vefsetrinu betra.is

slóðin er rakelgu.betra.is

Endilega kvittið ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 00:04:38 / rakelgu

Flutningur

Já nú fer að koma að flutningum hjá mér!! Hef fengið heilmikla hjálp eins og alltaf þegar ég flyt. Læt ykkur vita meira fljótlega!! ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 22:07:53 / rakelgu

Búið!

Þá eru vorferð og eitt fertugsafmæli að baki. Allt fór þetta fram í ljóma og jafnvel í sóma!

Óvissuferðin okkar endaði á Hótel Geysi eftir að hafa komið við á pallinum hjá Indu í Hveragerði og í tómataræktun á Flúðum. Veðrið lék við okkur og kannski einum of því ég fór svo vel klædd að ég þurfti að fara úr úlpunni vegna hita...og gleymdi henni svo á veitingastaðnum. Mæðgurnar Helga og Laufey höfðu brugðið sér í bústaðinn sinn til að gista og Helga var svo væn að nálgast úlpuna daginn eftir og senda hana með bróður sínum í bæinn!! meira vesenið!

 Framundan er knattspyrnuskóli hjá drengjunum og hér voru því allir sofnaðir um klukkan 9 þó að á morgun sé fyrsti frídagurinn þeirra frá skólanum! Ég þarf hins vegar að klára smá tiltekt í skólanum og svo er ég komin í frí!

Iss.....ef ég væri framhaldsskólakennari væri ég búin að vera í fríi í 3 vikur!! :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 17:47:17 / rakelgu

Allt að smella

Núna hyllir undir sumarfríið!! Ástandið í stofunni minni minnti illþyrmilega á bílskúrinn minn í dag - gjörsamlega allt á hvolfi og fullt af drasli sem þurfti að láta gossa!

 Á morgun förum við í óvissuferð og á laugardagskvöldið er ég á leið í fertugsafmælið hennar Fríðu uppi í Borgarfirði. Það verður slegið upp Hlöðuballi svo það er hreinlega spurning hvort maður fer bara beint úr óvissuferðinni...maður verður þannig gallaður!!

 Þá það er ekki bara mikið að gera í vinnunni! 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 22:31:51 / rakelgu

Skólaslit

Það er alltaf viss hátíðleiki yfir skólaslitum. Daglega umhverfið er gert svo sparilegt, íslenski fáninn, ræðupúltið og rauðar rósir í vösum gefa öllu sjarma sem býr til ákveðna stemningu.

Það er því alveg hægt að klökkna við að heyra lófatakið þegar 10. bekkingar ganga inn í salinn. Eins væri hægt að tárast yfir vel heppnuðum söng skólakórsins - í dag sungu börnin eins og englar.

Í dag vorum við að kveðja nemendur sem ég kenndi frá 1.-6. bekk. Nú stefna þeir í framhaldsskólana og mér heyrðist straumurinn liggja í Versló þetta árið! Þetta er í annað skiptið sem ég kveð krakka sem ég er búin að fylgjast með síðan í 6 ára bekk.

Svo rúllar þetta áfram! Ég kvaddi líka bekkinn minn í dag sem ég er búin að kenna sl. þrjú og hálft ár. Þau leystu mig út með gjöf og blómum þessar elskur. Nú get ég farið í Kringluna og keypt mér eitthvað til að minnast áranna með þeim. Svo mæti ég á skólaslitin eftir nokkur ár þegar þau ljúka 10. bekk. Þetta er svo fljótt að líða!


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 18:45:34 / rakelgu

Aldurstengdi fatamórallinn

Fór í búð í dag til að finna mér bráðnauðsynleg föt til að nota til dæmis í 15 ára kennaraafmælispartíinu sem ég og bekkjarsystkini mín ætlum að halda núna á laugardaginn.

Ég hafði byrjað á vitlausum enda - keypti mér skó í gær og núna þurftu fötin helst að passa við nýju skóna.

Eftir að hafa labbað búð úr búð og skoðað úrvalið án þess að finna eitthvað, rakst ég á gallapils. Mér fannst það fanta flott og meira að segja úr teygjanlegu gallaefni svo ekki ætti maður að þjást af andnauð.

Þegar ég mátaði pilsið byrjuðu áhyggjurnar að þjarma að mér. "Er þetta nú ekki of stutt og þröngt pils fyrir konu á þínum aldri Rakel?" (Ef ég man rétt eru um 16 ár síðan afi minn sagði þessa sömu setningu við mig).

Ég viðraði þessa spurningu við afgreiðslustúlkuna sem virtist hafa verið fermd fyrir stuttu. Hún horfði á mig tómum augum og virtist ekki skilja áhyggjur mínar. "Hva - finnst þér það sleikt?" "Það finnst mér ekki" sagði hún svo af miklu öryggi.

Ég ákvað að trúa henni....og keypti pilsið.

Ég var svo á hárgreiðslustofunni áðan og gluggaði í tímarit þar sem tuttuguogeitthvað ára gömul stúlka var að skrifa um þessar sömu áhyggjur sínar. Hún var hins vegar með það á kristaltæru að fertugar konur ættu ekki að vera í fermingarfötum!!

Og ég með sleikta pilsið (eða ekki) í poka úti í bíl!!!

SÓ VOTT! Ég verð nú ekki fertug fyrr en í ágúst!! 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 23:41:47 / rakelgu

Ferðalög og fleira

Þá erum við komin að austan eftir árlega fjölskylduferð systkina Þrándar og áhangenda. (Köllum okkur hvítasunnusöfnuðinn). Hægt var að vinna svona helstu vorverkin við bústaðinn auk þess að elda og borða í gríð og erg!

Ferðin byrjaði nú ekki vel hjá okkur. Við lögðum af stað í seinni kantinum því við vorum að bíða eftir að Aron kæmi heim frá Reykjum. Þegar við komum að Selfossi var hefðbundin biðröð eftir því að komast yfir Ölfusárbrúna. Bíllinn á undan okkur stöðvaðist skyndilega og við líka en bíllinn sem var á eftir okkur....ekki! Allavega ekki nógu snemma til að hamra aðeins aftan á okkur.

Elmar var sofandi þegar þetta gerðist og fannst ekki mikið til koma þegar hann vaknaði...þar sem enginn hafði dáið! Má svo sem segja það. Nú þarf bara að finna tíma til að setja bílinn í viðgerð!

Í dag fórum við með 4. bekkina í vorferðalag á Stokkseyri. Ferðin var óvissuferð og lukkaðist bara vel. Við heimsóttum Veiðisafnið og fórum svo í Töfragarðinn þar sem við grilluðum pylsur. Vorum sérlega heppin með veður!

Pabbi kíkti svo til okkar í kvöld. Hann er með sinn 10. bekk í vorferð og gistir í Fossvogskirkju (ekki við altarið þó).

Svo er það vorskólinn hjá mér á morgun. Þá fæ ég að sjá viðfangsefni næsta vetrar! Bara spennandi! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 22:46:17 / rakelgu

Í landi öfganna

Maður var ekki fyrr búinn að skola af sér svitann eftir sólbaðið á laugardaginn, en maður þurfti að rífa fram sköfuna og skafa snjóinn af bílnum!! Svona er það bara í landi öfganna, ekki einu sinni sama veður í öllum gluggum hússins!

Nú er Aron farinn í skólabúðirnar að Reykjum. Búinn að vera mjög spenntur og áðan sá ég að þegar eru komnar myndir af hópnum á heimasíðu skólabúðanna. Tvöföld ástæða fyrir ömmu og afa á Húsavík að fylgjast með, því þeirra skóli er þar á sama tíma!

Prófatörnin er í algleymingi hjá okkur í skólanum - við erum ýmist að búa til, aðlaga eða fara yfir próf! Þessi vika fer í það....

Svo er það hvítasunnuhelgin. Þá er meiningin að kíkja á hvernig bústaðurinn kemur undan vetri.

Spurning hvort Lalli getur passað húsið? Vúí, vúí.... :!:


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 22:31:38 / rakelgu

Bongó!

Hún er hérna ennþá! Hérna til vinstri!

Hvað um það! Það var bongó blíða í Fossvoginum í dag. Við erum ekki bún að endurnýja sólvörnina fyrir sumarið svo hreinninn Rúdolf myndi ekki skera sig úr á heimilinu núna! :^)

Igga og börnin kíktu í heimsókn og Benni varð eftir og gistir hjá okkur í nótt. Aron gistir hjá vini sínum svo Benni skríður bara upp í Arons ból.

Blíðan byrjaði reyndar á pallinum hjá mér í gær þegar ég bauð nokkrum samstarfskonum í mat. Við fengum okkur fordrykk og forrétt úti á palli, og fórum svo inn í gæsabringumáltíð að hætti Þrándar. Smakkaðist allt ljómandi vel!

Var að kíkja á dagatalið og fann út að við erum með plön fyrir allar helgar fram til 15. ágúst! Það finnst mér alveg einstaklega fráhrindandi tilhugsun!:$


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 23:04:54 / rakelgu

Hættiði nú alveg....

Hef verið að spá í að flytja mig um set á netinu. Mér finnast bloggsíður með heimatilbúnu umhverfi svo flottar.

Held að ég verði að láta verða af því fljótlega. Á meðan ég var að skrá mig inn núna horfði á mig lostafull kona í skjóllitlum brjóstahaldara. Á myndina var letrað "dirty" eitthvað og vísað á heimasíðu!

Þetta er nú ekki hægt!

Annars er alveg brjálað að gera hjá mér núna. Var í skólanum til að verða 7 í kvöld að sauma saman húfur í sjálfboðavinnu.

Í lokin: Ég fór snemma að sofa á kosninganóttina - Þrándur vakti aðeins lengur og þegar hann fór að sofa var stjórnin fallin! Þetta var svo staðfest á forsíðu Fréttablaðsins morguninn eftir. Það var ekki fyrr en í kvöldfréttunum að ég heyrði sannleikann :$

Ég sem var orðin verulega spennt! :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 22:40:13 / rakelgu

Úff

Gengur betur næst!  :$

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 22:14:52 / rakelgu

Tónleikar og fleira

Fór að horfa á frænkur mínar 3 (og nokkrar til viðbótar) syngja með Léttsveitinni í gær. Tónleikarnir voru haldnir í Bústaðakirkju, svo hæg voru heimatökin fyrir mig og engar áhyggjur þurfti ég að hafa af bílastæði.

Tónleikarnir voru mjög skemmtilegir, fjörug lög með hreyfingum og alles 8) auk þess sem Bergþór Pálsson söng með þeim nokkur lög af alkunnri geislandi gleði!

Var samt uppgefin þegar heim kom, enda búin að sitja á kirkjubekk í einn og hálfan tíma. Lagðist þess vegna fyrir framan sjónvarpið þegar ég var búin að húrra undan brekkunni og átti því eftir að ljúka yfirferð á nokkrum könnunum í stærðfræði áður en ég kom mér í háttinn!

Næsta vetur verður ekkert um kannanir hjá mér.......því ég fer að kenna 6 ára börnum! 8|

Gangi mér vel! :$


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 17:19:16 / rakelgu

Skari og Múfasa

Eins og ég hef áður nefnt hér á síðunni erum við á heimilinu að ganga í gegnum Lion King tímabilið þriðja.

Spóluhulstrið er orðið lúið og mikið skoðað og við farin að spóla yfir auglýsinguna um að Pocahontas sé væntanleg á spólu. Raunar eru fáir sem ennþá horfa á spólur, því diskarnir hafa fyrir löngu tekið völdin.

Það er því alltaf svolítið skemmtileg tilbreyting fyrir okkur þegar einhver nýyrði verða til útfrá þessu síendurtekna áhorfi.

Í dag var minnsti maður að leika sér í dýraleik að nýafstöðnu áhorfi: (Fyrir þá sem ekki hafa séð myndina þá var Skari afbrýðisami bróðirinn sem drap góða bróðurinn - þetta er líka þekkt þema úr Biblíunni)

Ég er Múfasa - konungur ljónanna. Skari þú ert forðingi.............!


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 17:03:39 / rakelgu

Sumarfílingurinn

Var mætt snemma í morgun til að horfa á Sölva keppa í fótbolta á KFC mótinu í Víkinni. Komst alveg í sumarfíling í 4 stiga hita með húfu, trefil í hlífðarbuxum og íslenskri sumarúlpu. 8)

Sölvi bætti það upp með að eiga góða leiki - skoraði 3 mörk og lagði upp eitt - honum þótti það ekki slæmt!

Ég missti reyndar af einum hálfleik þar sem Aron þurfti að komast upp í Egilshöll að keppa með sínum flokki. Það áttu Víkingar eitt jafntefli og einn sigur.

Elmar Logi var með í för og var svekktur yfir því að fá ekki frekar að horfa á Aron en Sölva. Hann komst nefnilega að því fyrir stuttu, að það er seldur ís í Egilshöllinni! :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagsetning
7. febrúar 2012
Klukkan